Kynningarfundir Verkís á Akureyri og Sauðárkróki
Kynningarfundir Verkís á Akureyri og Sauðárkróki. Í gær hélt Verkís tvo kynningafundi um aðgengismál, umhirðu útisvæða og skipulagsmál á Akureyri og Sauðárkróki.
Landslagsarkitektarnir Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir og Erla Bryndís Kristjánsdóttir héldu erindi á fundunum ásamt Ragnari Bjarnasyni, byggingarverkfræðingi og útibússtjóra Verkís á Akureyri.
Þau fjölluðu um úttektir á aðgengi, m.a. að skólum og íþróttamannvirkjum og handbók um aðgengismál sem Verkís gaf út í haust í samstarfi við Vegagerðina og Reykjavíkurborg.
Hópurinn kynnti einnig umhirðu- og ástandsúttektir á opnum svæðum og gróðursamfélögum. Að lokum var kynning á þjónustu Verkís á sviði skipulagsmála.
Þjónusta Verkís á þessu sviði
Bæklingur Verkís: Landslagsarkitektúr