Kortlagning ofanflóðahættu á vegum landsins
Kolbrún Lena Rafnsdóttir, B.Sc. umhverfis- og byggingarverkfræði hjá Verkís, kynnir niðurstöður verkefnis um kortlagningu ofanflóðahættu við þjóðvegi landsins á Snjóflóðaráðstefnu Snjóflóðasamtaka Íslands í dag, 15. október. Verkefnið hlaut styrk úr Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar og verða niðurstöður þess einnig kynntar á ráðstefnu Vegagerðarinnar 6. nóvember.
Markmið verkefnisins var að safna saman og greina upplýsingar um ofanflóðahættu og virkni ofanflóðavarna við vegi á Íslandi. Þekkt snjóflóðasvæði við vegi voru kortlögð út frá fyrirliggjandi skráningum og þekkingu reyndra starfsmanna Vegagerðarinnar.
Alls voru 488 þekkt ofanflóðasvæði við þjóðvegi landsins kortlögð í verkefninu. Jafnframt var virkni ofanflóðavarna við vegi metin þar sem næg gögn lágu fyrir um reynslu af núverandi mannvirkjum.

Mikilvæg þekking færð í heildstæðan grunn
Á síðustu áratugum hefur safnast upp mikil þekking á þeim vegköflum þar sem hætta er á ofanflóðum og á virkni þeirra varna sem reistar hafa verið við vegi. Þekkingin hefur hins vegar að stórum hluta verið dreifð og aðeins að takmörkuðu leyti skráð með formlegum hætti.
Verkefnið miðaði því að því að safna þessari þekkingu saman, skrásetja hana og draga fram heildstæða mynd af ofanflóðahættu við vegakerfið. Niðurstöðurnar geta þannig nýst við forgangsröðun aðgerða, stefnumótun og ákvarðanatöku um framtíðarvarnir vegna ofanflóðahættu.
Í erindi Kolbrúnar Lenu verður megináhersla lögð á þann hluta verkefnisins sem sneri að kortlagningu ofanflóðasvæða við vegi landsins.
Snjóflóðaráðstefnan 15. október
Snjóflóðasamtök Íslands standa fyrir hálfsdagsráðstefnu fimmtudaginn 15. október í húsnæði HSSK að Tónahvarfi 8. Þar verður fjallað um fjölbreytt málefni tengd snjóflóðum, meðal annars hættumat og forvarnir, nýjungar og tækniframfarir, áhrif snjóflóða á samfélög og framtíðarhorfur.
Erindi Kolbrúnar Lenu, „Kortlagning ofanflóðahættu á vegum landsins“, er á dagskrá ráðstefnunnar undir yfirskriftinni „Áður en flóðið fellur“.
