Jarðhitafélag Íslands í heimsókn hjá Verkís
Fimmtudaginn 26. febrúar síðastliðinn tók Verkís á móti félagsmönnum Jarðhitafélags Íslands í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Ofanleiti 2 í Reykjavík. Góð mæting var á viðburðinn og sköpuðust líflegar og faglegar umræður um jarðvarmamál og þróun verkefna á sviði orku.
Fjögur erindi frá sérfræðingum Verkís
Starfsmenn Verkís fluttu fjögur erindi þar sem varpað var ljósi á starfsemi fyrirtækisins og valin jarðvarmaverkefni:
- Kynning á starfsemi Verkís – Eyþór Sigurðsson, viðskiptastjóri jarðvarma á orkusviði
- Toppvél Þeistareykjum – Bjarni Steinar Gunnarsson, vélaverkfræðingur á orkusviði
- Hitaveita Dalabyggð – Einar Benediktsson, vél- og orkutæknifræðingur á orkusviði
- Bein nýting jarðvarma – Þorleikur Jóhannesson, vélaverkfræðingur á orkusviði
Í erindunum var farið yfir bæði tæknilegar áskoranir og lausnir, auk þess sem rætt var um þróun og framtíðarsýn í nýtingu jarðvarma hér á landi.
Að erindum loknum var boðið upp á léttar veitingar og gafst þátttakendum gott tækifæri til að halda áfram samtali og efla tengsl innan greinarinnar.
Verkís þakkar Jarðhitafélagi Íslands kærlega fyrir komuna og góða samveru.



