28/03/2022
Góð aðsókn á bás Verkís
Góð aðsókn á bás Verkís. Mjög góð aðsókn var á bás Verkís á sýningunni Verk og vit sem lauk í gær.
Áhersla var lögð á að fagna níutíu ára afmæli Verkís og var afmælismyndband um sögu fyrirtækisins m.a. frumsýnt. Þá kynntu margir gestir sér hvernig Verkís notar sýndarveruleika í hönnunarvinnu.
Við þökkum þeim sem litu við á básnum fyrir komuna. Takk fyrir að gefa ykkur tíma til að spjalla um verkfræði og spennandi verkefni!
Hér á heimasíðunni má síðan lesa eitt og annað um þjónustu Verkís, verkefni og annað áhugavert.