Fulltrúar grænlensku heimastjórnarinnar í heimsókn hjá Verkís
Verkís fékk þann 19. nóvember síðastliðinn heimsókn frá fulltrúum grænlensku heimastjórnarinnar á Íslandi. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna starfsemi Verkís og ræða verkefni og möguleika á frekara samstarfi á Grænlandi.
Í heimsóknina komu Karsten Peter Jensen, sendifulltrúi Grænlands, og Niklas Bak Hansen, starfsmaður sendiskrifstofu Grænlands í Reykjavík. Þeir funduðu með fulltrúum Verkís og kynntu sér starfsemi fyrirtækisins og reynslu þess af verkefnum á Grænlandi.
Verkís hefur komið að fjölbreyttum verkefnum á Grænlandi um áratuga skeið, meðal annars á sviði orkumála og samgangna. Fyrirtækið hefur meðal annars tekið þátt í hönnun og uppbyggingu vatnsaflsvirkjana í landinu auk verkefna sem tengjast uppbyggingu samgöngumannvirkja.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Grænlandi undanfarin ár, meðal annars á sviði flugsamgangna og annarra innviða. Verkís hefur tekið þátt í þeirri þróun og starfrækir dótturfélagið Verkís Grønland með aðsetur í Nuuk.
