Framúrskarandi fyrirtæki 2018
Framúrskarandi fyrirtæki 2018. Verkís er í hópi þeirra um 2% íslenskra fyrirtækja sem teljast til Framúrskarandi fyrirtækja árið 2018.
Það voru Jóna Þórunn Guðmundsdóttir, fjármálastjóri og Hulda Sigrún Sigurðardóttir, kynningarstjóri hjá Verkís sem tóku við viðurkenningunni.
Verkís er í hópi þeirra rúmu 800 fyrirtækja sem hlutu viðurkenninguna í ár samkvæmt mati Creditinfo. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra.
Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækum viðurkenningu fyrir árangur.
Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla eftirfarin skilyrði:
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
- Ársreikningi skal skilað á réttum tíma lögum samkvæmt
- Hefur skilað ársreikningi til RSK síðustu þrjú ár
- Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
- Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár
- Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Rekstrarhagnaður (EBIT) jákvæður síðustu þrjú ár
- Ársniðurstaða jákvæð síðustu þrjú ár
- Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár
- Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár