19/03/2019

Fjölnota íþróttahús í Garðabæ

Fjölnota íþróttahús í Garðabæ
Fjölnota íþróttahús Garðabæ

Fjölnota íþróttahús í Garðabæ. Samningar hönnuða ASK arkitekta og Verkís verkfræðistofu við alverktaka fjölnota íþróttahúss í Gærabæ, ÍAV, voru undirritaðir á föstudag, 15. mars sl., í Golfskála GKG í Garðabæ.

Á myndinni eru, Sigurður Ragnarsson forstjóri ÍAV, Páll Gunnlaugsson framkvæmdastjóri hjá ASK arkitektum og Flosi Sigurðsson viðskiptastjóri byggingarsviðs Verkís, en í baksýn er svæðið þar sem íþróttahúsið mun rísa.

Húsið verður staðsett í Vetrarmýri, svæðinu milli Hnoðraholts og Vífilsstaða.

Verkís mun sjá um alla verkfræðihönnun.

Fjölnota íþróttahús í Garðabæ
Fjölnota íþróttahús Garðabæ