Fjallað um mengunarrannsóknir á Akureyri
Verkís hélt kynningarfund þar sem farið var yfir regluverk, kröfur og helstu atriði sem þarf að hafa í huga við rannsóknir á mögulega menguðum svæðum.
Á fundinum var fjallað um hvernig meta má mengunarstöðu svæðis áður en framkvæmdir hefjast, hvernig umfang og útbreiðsla mengunar er rannsökuð og hvernig áhættumat getur nýst við ákvarðanatöku. Einnig var farið yfir mögulegar lausnir og mengunarvarnir þegar mengun finnst, meðal annars meðhöndlun jarðvegs og atriði sem þarf að huga að við hönnun og framkvæmd.
Markmið fundarins var að veita þátttakendum hagnýta yfirsýn yfir helstu kröfur og viðfangsefni sem tengjast mengunarrannsóknum og sýnatökum, auk þess að kynna hvernig Verkís getur aðstoðað við rannsóknir, áhættumat og ráðgjöf.
Sérfræðiþekking á mengunarrannsóknum
Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, umhverfis- og jarðefnafræðingur hjá Verkís og sérfræðingur á sviði mengunarrannsókna, hélt erindi á fundinum og ræddi við gesti um málefnið. Erla hefur víðtæka reynslu af rannsóknum á mengun í jarðvegi og vatni, áhættumati og úrvinnslu mengunarmála.
Erla er jafnframt formaður FUMÍS, Fagfélags um mengun á Íslandi, sem er vettvangur fyrir fagfólk sem starfar að mengunarmálum, rannsóknum, ráðgjöf og lausnum á því sviði.
Fundurinn fór fram í starfsstöð Verkís á Akureyri, þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að fræðast um mengunarrannsóknir og ræða þau atriði sem skipta máli þegar undirbúningur framkvæmda hefst.
