Skip to content
12/10/2026

Erla Guðrún fjallaði um framfarir í rannsóknum og úrbótum á menguðum svæðum á NORDROCS 2026

Erla Guðrún Hafsteinsdóttir og Kristín Kröyer flytja hér fyrirlestur sinn.

Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, umhverfis- og jarðefnafræðingur hjá Verkís, hélt erindi ásamt Kristínu Kröyer, sérfræðingi hjá Umhverfis- og orkustofnun, á alþjóðlegu ráðstefnunni NORDROCS 2026 sem fram fór í Helsinki í Finnlandi dagana 14.–17. september. Í erindinu var fjallað um þróun rannsókna og úrbóta á menguðum svæðum á Íslandi, þann árangur sem náðst hefur undanfarin ár og tækifæri til frekari framfara.

Miklar framfarir á undanförnum árum

Erindið bar yfirskriftina Momentum for Change: Fast-tracking Iceland’s Contaminated Land Practices og fjallaði um þær breytingar sem orðið hafa á Íslandi á sviði rannsókna og úrbóta á menguðum svæðum frá árinu 2019.

Þegar Erla hóf störf á Íslandi árið 2019 var aðstaða til rannsókna á menguðum svæðum takmörkuð. Skortur var á leiðbeiningum, sérhæfðum búnaði, rannsóknaraðstöðu og úrræðum til meðhöndlunar mengaðs jarðvegs. Á undanförnum árum hafa hins vegar orðið töluverðar framfarir, meðal annars með útgáfu nýrra leiðbeininga, aukinni þekkingu og þróun aðferða við rannsóknir og úrbætur á menguðum svæðum.

Í erindinu var meðal annars fjallað um uppbyggingu gagnagrunns yfir menguð svæði á Íslandi, þróun regluverks og leiðbeininga og mikilvægi þess að bæta aðstöðu til meðhöndlunar mengaðs jarðvegs hér á landi.

Sérhæfð þekking og ráðgjöf hjá Verkís

Erla Guðrún er með doktorspróf í umhverfisjarðefnafræði og hefur víðtæka alþjóðlega reynslu af rannsóknum og ráðgjöf á sviði mengaðs jarðvegs, meðal annars frá Ástralíu og Suðurskautslandinu.

Hjá Verkís starfar nú sex manna sérfræðiteymi sem sinnir rannsóknum og ráðgjöf vegna mengaðra svæða. Verkefnin eru fjölbreytt og tengjast meðal annars flugvöllum, bensínstöðvum, fyrrum hernaðarsvæðum, sveitarfélögum og orkufyrirtækjum.

Samhliða verkefnavinnu leggur teymið áherslu á þekkingarmiðlun og samstarf við stjórnvöld, heilbrigðiseftirlit og aðra fagaðila.

Samstarf og þekkingarmiðlun lykillinn að áframhaldandi þróun

Erla Guðrún er jafnframt formaður og einn stofnenda FUMÍS, Fagfélags um mengun á Íslandi, sem stofnað var í febrúar 2024. Félagið vinnur að aukinni fagmennsku, samstarfi og miðlun þekkingar á sviði mengunarrannsókna og úrbóta.

Erla sat einnig í alþjóðlegri undirbúningsnefnd NORDROCS 2026 fyrir hönd FUMÍS.

Undirbúningsnefnd NORDROCS © www.nordrocs.org

Í lok erindisins lögðu Erla og Kristín áherslu á að samstarf og þekkingarmiðlun væru grundvallarforsendur þess að áframhaldandi framfarir næðust á Íslandi og að íslenskir starfshættir þróuðust í takt við alþjóðlega bestu framkvæmd.

NORDROCS er haldin annað hvert ár og er mikilvægur samstarfsvettvangur sérfræðinga á sviði mengaðs jarðvegs og grunnvatns á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu.

Heimsmarkmið

Erla Guðrún Hafsteinsdóttir og Kristín Kröyer flytja hér fyrirlestur sinn.

Deila þessari færslu