Aukið skipulagslæsi hjá starfsfólki Verkís
Erla Bryndís Kristjánsdóttir, landslagsarkitekt, og Gunnar Páll Eydal, umhverfis- og auðlindafræðingur og skipulagsfræðingur, héldu námskeið um skipulagsmál fyrir starfsfólk Verkís miðvikudaginn 2. september. Erla og Gunnar starfa bæði á Samgöngu- og umhverfissviði Verkís og búa yfir víðtækri reynslu af skipulagsmálum og tengslum skipulags við hönnun og framkvæmdir.
Námskeiðið var sérstaklega ætlað verkefnisstjórum og starfsfólki sem vinnur að verkefnum tengdum framkvæmdum sem þurfa að vera í samræmi við skipulag. Þar má meðal annars nefna virkjanir, byggingar, vegi, flugvelli, varnargarða, veitumannvirki, íþróttasvæði, efnistöku og efnislosun.
Skipulagið setur rammann
Skipulagsmál snerta fjölmörg verkefni Verkís enda er í skipulagi landi ráðstafað til mismunandi nýtingar og ákvæði sett um hönnun mannvirkja og mótun umhverfis. Skipulag setur jafnframt ramma um heimildir til framkvæmda og er grundvöllur ýmissa leyfa, svo sem byggingar- og framkvæmdaleyfa.
Markmið námskeiðsins var að auka þekkingu verkefnisstjóra og hönnuða á þeim ramma sem skipulag setur fyrir hönnun mannvirkja og gefa þátttakendum innsýn í vinnslu og tímaramma skipulagsgerðar.
Á námskeiðinu fóru Erla og Gunnar meðal annars yfir tilgang og markmið skipulagsgerðar, helstu hugtök, mismunandi gerðir skipulags, skipulagsferlið, umhverfismat og hvernig lesa megi skipulag og þær heimildir sem í því felast.

Miðla þekkingunni áfram
Erla og Gunnar munu einnig miðla þekkingu sinni á skipulagsmálum út fyrir Verkís í október þegar þau halda námskeið á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands.
Þar verður farið yfir grunnatriði skipulagsmála með það að markmiði að auka skipulagslæsi þátttakenda og færni þeirra til þátttöku í skipulagsgerð. Meðal annars verður fjallað um áhrif skipulags á umhverfi og samfélag, aðkomu íbúa og annarra hagaðila að skipulagsgerð og þau tæki og tól sem notuð eru við skipulagsvinnu.
Námskeiðið hjá Endurmenntun HÍ er meðal annars ætlað sveitarstjórnarfólki og öðrum kjörnum fulltrúum, starfsfólki sveitarfélaga og opinberra stofnana, aðilum sem koma að framkvæmdum sem kalla á skipulagsvinnu og öðrum sem vilja auka þekkingu sína á skipulagsmálum.
