14/09/2018

Aldursgreining á gæsavængjum hætt

Aldursgreining á gæsavængjum hætt
Gæsir

Aldursgreining á gæsavængjum hætt. Annað árið í röð hefur ekki fengist styrkur til að sinna aldursgreiningum á gæsavængjum. En mikilvægi mælinga á aldurshlutfalli í veiði hefur aukist og því synd að þeim skuli nú vera hætt.

Arnór Þ. Sigfússon, fuglafræðingur hjá Verkís, hefur séð um merkingar á gæsum í tæp 25 ár og er því mikil eftirsjá með verkefninu. Verkefnið hefur tvímælalaust skilað árangri og mikilvægi mælinga á aldurshlutfalli í veiði hefur aukist.

Þegar verkefnið hóft árið 1993 var grágæsastofninn á niðurleið og lenti á válista um aldamótin. Viðsnúningur varð í ungaframleiðslu upp úr aldamótum og ungahlutfallið í veiðinni fór úr um 40% og í að meðaltali um 47% það sem af er þessari öld. Ungaframleiðsla stendur undir veiðinni að stórum hluta og gegnir lykilhlutverki í því að stofninn standi undir veiðiálaginu.

Um tíma fékk verkefnið styrk úr Veiðikortasjóði en breyting varð á úthlutunarreglum sjóðsins árið 2016.

Aldursgreining á gæsavængjum hætt
Gæsir