130 verkfræðinemar heimsóttu Verkís
Verkís tók á móti 130 verkfræðinemum frá Háskóla Íslands í vísindaferð í starfsstöð fyrirtækisins, Ofanleiti síðastliðinn föstudag. Nemendurnir komu frá nemendafélögunum Nöglunum, Vír og Vélinni.
Nemendum var skipt í fjóra hópa sem fóru á milli stöðva víðs vegar um húsnæðið. Þar fengu þau innsýn í starfsemi Verkís, kynntust fjölbreyttum verkefnum fyrirtækisins og fræddust um reynslu starfsfólks af verkfræðinámi og starfi.
Nemendur fengu kynningu af verkefninu við Ölfusárbrú, reynslu nýliða hjá Verkís og starfsemi fyrirtækisins almennt. Einnig var efnt til skemmtilegra Verkísleika sem settu líflegan svip á heimsóknina.
Vísindaferðin tókst vel og var kærkomið tækifæri til að taka á móti framtíðarverkfræðingum, kynna þeim starfsemi Verkís og sýna þá fjölbreyttu möguleika sem felast í störfum hjá verkfræðistofu.
