Styrkur og reynsla
Meðal þjónustuþátta sem sérfræðingar Verkís á sviði víðnetskerfa veita eru FTTH eða ljós heim til þín, örbylgjusambönd, GPRS3G/4G sambönd og varaaflstöðvar fyrir fjarskiptakerfi.
Verkís tók þátt í uppbyggingu ljósleiðaradreifikerfis sem Orkuveita Reykjavíkur byggði upp fyrst sem Lína.net og síðan undir merkjum Gagnaveitu Reykjavíkur. Byggður var upp gagnagrunnur til að halda utan um tengingar heimtauga, grunnnetið hannað og tengingar deilihannaðar.
Þá hefur Verkís komið að uppbyggingu fyrir víðnetskerfi bæði hér heima og erlendis, til að mynda hjá Hitaveitu Suðurnesja, í Hellisheiðarvirkjun og í Ilulissat á Grænlandi.
Sérfræðingar okkar hafa mikla reynslu af því að vinna við fjölbreyttar aðstæður og hafa markmið, óskir og þarfir verkkaupa ávallt að leiðarljósi, sama hvert verkið er.
Okkur er treyst fyrir yfirgripsmiklum verkefnum á sviði víðnetskerfa og nýtum þar styrk okkar svo hvert einasta verkefni verði farsælt.