Verkefni
Einbúavirkjun
Litluvellir ehf. áformar að reisa 9,8 megavatta vatnsaflsvirkjun, Einbúavirkjun, í Skjálfandafljóti í Bárðardal.
Verkís vann mat á umhverfisáhrifum fyrir Litluvelli ehf. ásamt frumhönnun og hagkvæmnisathugun.

Um er að ræða rennslisvirkjun í landi Kálfborgarár og Einbúa í Bárðardal. Uppsett afl Einbúavirkjunar er nærri viðmiði um matsskylda framkvæmd og efnistaka vegna framkvæmdarinnar er matsskyld.
Litluvellir ehf. telur æskilegt að framkvæmdin verði háð mati á umhverfisáhrifum og að almenningur og aðrir hafi tök á að kynna sér framkvæmdina og koma að athugasemdum í opnu matsferli. Féllst Skipulagsstofnun á að um Einbúavirkjun verði fjallað í mati á umhverfisáhrifum.
Staðsetning:
Skjálfandafljót, Bárðardalur
Stærð:
9,8 megavött
Verktími:
2018-