Verkefni
Vesturbæjarskóli
Um er að ræða eftirlit með uppsteypu og fullnaðarfrágangi á viðbyggingu við Vesturbæjarskóla auk ýmissa breytinga á eldri byggingu.
Verkefni
Um er að ræða eftirlit með uppsteypu og fullnaðarfrágangi á viðbyggingu við Vesturbæjarskóla auk ýmissa breytinga á eldri byggingu.
Viðbyggingin er á þremur hæðum og verða þar m.a. kennslustofur, fjölnota salur og aðstaða fyrir tónlistarkennslu.
Í heildina er stærð viðbyggingar rétt um 1.400 fermetrar og eru áætluð verklok um miðjan ágúst 2018. Uppsteypu er lokið, breytingum á leikfimisal er sömuleiðis lokið og hefur hann verið tekinn í notkun. Sem stendur er frágangur innanhúss í nýbyggingu í fullum gangi auk þess sem unnið er að ýmsum breytingum í eldra húsnæði.
Staðsetning:
Sólvallagata 67, 101 Reykjavík
Stærð:
1.400 m²
Verktími:
2017 – 2019