Þjónusta

Háspennustrengir og -línur

Þjónusta Verkís fyrir háspennustrengir og -línur nær til allra þátta strenglagna, meðal annars háspennustrengja og fylgibúnaðar, jarðvinnu, landmælinga og skipulagsmála.

Við höfum komið að jarðstrengslagningu öllum spennustigum sem notuð eru á Íslandi, frá smáspennu og upp í 220 kV spennu.

Við elskum áskoranir

Verkís hefur átt aðild að sérfræðingahópi sem Landsnet setti á stofn árið 2014 um möguleika á aukinni notkun jarðstrengja í 132 kV og 220 kV flutningskerfum fyrirtækisins.

Starfsfólk Verkís hefur unnið fjölmörg verkefni á sviði jarðstrengslagna og er í fararbroddi meðal íslenskra verkfræðistofa við hönnun og skipulagningu sæstrengslagna.

Dótturfyrirtæki Verkís í Póllandi, Verkis Polska, er sérhæft í þjónustu við loftlínur á háspennu. Fyrirtækið hefur unnið fjölda verkefna fyrir flutningsfyrirtæki Póllands varðandi hönnun og undirbúning, sem og eftirlit með byggingu loftlína.

Verkefni Verkís við loftlínur á háspennu á Íslandi hafa verið við frumathuganir og verkhönnun á háspennulínum fyrir íslensk orkufyrirtæki. Þjónustan nær til athugana á línuleiðum, flutningsgetu, turngerðum, burðarþoli, jarðskautum og fleiru.

Sérfræðingar okkar elska áskoranir og leita ávallt nýrra og spennandi leiða til að tryggja hagkvæmni verka og farsæla framkvæmd.

Verkís er í fararbroddi meðal íslenskra verkfræðistofa við hönnun og skipulagningu sæstrengslagna.

Verkefni

Tengiliðir

Haukur Geir Guðnason
Rafmagnstæknifræðingur
Svið: Orka og iðnaður
hgg@verkis.is

Snæbjörn Jónsson
Rafmagnsverkfræðingur / Verkefnastjóri
Svið: Orka og iðnaður
snj@verkis.is