Áhersla er lögð á upplifun við hönnun stjörnuversins. Gestir þess upplifa norðurljósin þegar þeir ganga í gegnum gang sem liggur að sjálfu stjörnuverinu. Þar setjast þeir í stóla og njóta þess sem himinhvolfið hefur upp á bjóða. Til að gera upplifunina sem magnaðasta eru notaðir stórir þrívíddarskjávarpar sem varpa upp í hvelfinguna. Í stjörnuverinu er fullkomið Surround-hljóðkerfi og bestu myndgæði sem í boði eru á heimsvísu í dag.
Framkvæmdir við Stjörnuver Perlunnar hófust árið 2017. Vinna Verkís við breytingarnar á Perlunni hefur verið margþætt og nær meðal annars til hönnunar burðarvirkja, lagna- og loftræsikerfa, rafkerfa, aðallýsingu og lýsingarkerfi í glerkúplinum á toppi byggingarinnar auk bruna- og hljóðhönnunar.