Skip to content
26/11/2026

Nýr flugvöllur opnaður í Ilulissat

© Greenland Airports
Nýi flugvöllurinn í Ilulissat
Greenland Airports

Nýr alþjóðaflugvöllur í Ilulissat á Grænlandi var tekinn í notkun 29. október síðastliðinn. Verkís kom að uppbyggingu flugvallarins með hönnun og verkfræðiráðgjöf. Opnunin markar mikilvæg tímamót í samgöngum á Grænlandi og skapar ný tækifæri fyrir ferðaþjónustu á svæðinu.

Við stækkun flugvallarins var flugbrautin lengd úr 845 metrum í 2.200 metra og þrjár nýjar byggingar reistar: flugstöð, þjónustubygging og flugturn. Með framkvæmdunum getur flugvöllurinn nú tekið á móti stærri farþegaþotum og þar með millilandaflugi með stærri farþegaþotum.

Verkís kom að hönnun og ráðgjöf

Verkís tók þátt í verkefninu í samstarfi við verktaka og aðra ráðgjafa. Aðkoma fyrirtækisins fól meðal annars í sér hönnun á undirstöðum fyrir nýju flugstöðvarbygginguna og ráðgjöf um burðarþol.

Þá sá Verkís um yfirferð hönnunargagna frá framleiðendum, samræmingu hönnunargagna annarra ráðgjafa vegna burðarþols allra þriggja bygginganna og gerð hönnunarskýrslu fyrir byggingarnar.

Verkefnið var unnið við krefjandi náttúrulegar aðstæður á Grænlandi þar sem taka þurfti mið af staðbundnum aðstæðum við hönnun og uppbyggingu mannvirkjanna.

Frá byggingu flugvallarins í Ilulissat

Bættar samgöngur og aukin tækifæri

Ilulissat er einn vinsælasti ferðamannastaður Grænlands, meðal annars vegna nálægðar við Ilulissat-ísfjörð, sem hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá árinu 2004.

Með nýja flugvellinum batna samgöngutengingar við svæðið verulega. Þótt millilandaflug hafi áður verið í boði til Ilulissat takmarkaði stutt flugbraut stærð þeirra flugvéla sem gátu lent þar. Stærri farþegaþotur þurftu að lenda annars staðar á Grænlandi, meðal annars í Kangerlussuaq, þaðan sem farþegar héldu ferð sinni áfram með minni flugvélum.

Með lengingu flugbrautarinnar geta stærri farþegaþotur nú flogið beint til Ilulissat. Icelandair hefur meðal annars kynnt áform um flug milli Keflavíkur og Ilulissat sumarið 2027.

Uppbygging flugvallarins er hluti af umfangsmiklum endurbótum á flugvallarkerfi Grænlands. Ásamt nýjum alþjóðaflugvelli í Nuuk mun hann stuðla að bættum samgöngum, styttri ferðatíma og minni þörf fyrir tengiflug innan Grænlands, auk þess að styðja við áframhaldandi uppbyggingu ferðaþjónustu.

Nánar um verkefnið á vef Verkís

Heimsmarkmið

Nýi flugvöllurinn í Ilulissat
© Greenland Airports

Deila þessari færslu