Skip to content
25/11/2026

Verkís tekur þátt í endurnýjun stjórnkerfa Sogsstöðva

© www.visir.is
Frá undirritun samninga: Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Orkuvirkis, Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri Verkís, Ernst Gwiss, sölustjóri hjá Andritz Hydro og Landsvirkjunarfólkið Eyjólfur Alexandersson, verkefnisstjóri endurbóta, Kristín Linda Árnadóttir, settur forstjóri og Kristján Halldórsson, forstöðumaður rekstrar vatnsafls.
www.visir.is

Verkís hefur verið ráðið sem undirverktaki Andritz Hydro við umfangsmikla endurnýjun stjórn- og varnarbúnaðar í þremur vatnsaflsvirkjunum Landsvirkjunar í Soginu. Verkefnið nær til Ljósafossstöðvar, Írafossstöðvar og Steingrímsstöðvar og er áætlað að því ljúki árið 2030.

Sogsstöðvarnar eru meðal elstu vatnsaflsvirkjana landsins. Ljósafossstöð var gangsett árið 1937, Írafossstöð árið 1953 og Steingrímsstöð árið 1959. Í stöðvunum þremur eru samtals átta vélasamstæður með um 90 MW samanlagt afl.

Verkefnið felur í sér heildstæða endurnýjun stjórnkerfa stöðvanna, sem eru að stofni til frá árinu 1997. Auk nýrra stjórnkerfa verður skipt um rafrænar varnir, gangráða og segulmögnunarbúnað vélanna. Þá verður sett upp nýtt svæðisstjórnkerfi og samræmd vatnshæðarstýring fyrir allar þrjár virkjanirnar.

Markmið endurnýjunarinnar er meðal annars að gera stöðvarnar að mestu mannlausar, þannig að hægt verði að stýra þeim og vakta þær með fjarstýringu.

Verkís annast hönnun, samræmingu og gangsetningu

Hlutverk Verkís í verkefninu er fjölþætt og felur meðal annars í sér hönnun stjórn- og varnarbúnaðar fyrir vélasamstæður, sameiginleg kerfi stöðvanna og tengd mannvirki. Verkís mun jafnframt annast samræmingu framkvæmda á verkstað og taka þátt í prófunum og gangsetningu nýs búnaðar í samstarfi við Andritz Hydro og Landsvirkjun.

Endurnýjunin fer fram samhliða áframhaldandi rekstri virkjananna. Vélasamstæður verða því teknar tímabundið úr rekstri samkvæmt fyrirfram ákveðinni áætlun á meðan nýr búnaður er settur upp, prófaður og gangsettur.

Verkið hófst í nóvember 2026 og verður unnið í áföngum fram til ársins 2030. Framkvæmdir hefjast í Ljósafossstöð, því næst verður unnið í Steingrímsstöð og að lokum í Írafossstöð.

Verkefnisstjóri Verkís er Þórólfur Kristjánsson, rafmagnstæknifræðingur á orkusviði.

Heimsmarkmið

Frá undirritun samninga: Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Orkuvirkis, Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri Verkís, Ernst Gwiss, sölustjóri hjá Andritz Hydro og Landsvirkjunarfólkið Eyjólfur Alexandersson, verkefnisstjóri endurbóta, Kristín Linda Árnadóttir, settur forstjóri og Kristján Halldórsson, forstöðumaður rekstrar vatnsafls.
© www.visir.is

Deila þessari færslu