Verkís tók þátt í Rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar
Starfsfólk Verkís tók þátt í Rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar sem haldin var í 25. sinn föstudaginn 6. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica. Þar voru kynnt fjölbreytt rannsóknar- og þróunarverkefni á sviði samgangna, mannvirkja, umhverfis og náttúruvár.
Tvö erindi á ráðstefnunni voru frá starfsfólki Verkís. Kolbrún Lena Rafnsdóttir kynnti verkefnið Kortlagning ofanflóðahættu á vegum landsins og Anna Guðrún Stefánsdóttir fjallaði um Samanburð mismunandi tegunda vegamóta á fjölförnum vegum.


Rannsóknirnar fjalla um mikilvæg viðfangsefni í þróun samgöngukerfa, annars vegar mat á ofanflóðahættu og hins vegar útfærslu vegamóta á fjölförnum vegum. Þær endurspegla fjölbreytta þekkingu og reynslu Verkís á sviði samgangna og innviða.
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar er mikilvægur vettvangur fyrir miðlun þekkingar, kynningu á rannsóknum og samtal fagfólks um þróun samgöngumála á Íslandi. Verkís leggur áherslu á að taka þátt í rannsóknum og þekkingaruppbyggingu sem stuðlar að öruggum, hagkvæmum og sjálfbærum innviðum.
🔗 Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar – dagskrá og upplýsingar
