Skip to content
04/11/2026

Verkís kaupir Stóra Neyðarkallinn 2026

Stóri Neyðarkallinn 2026 kominn í hús hjá Verkís.

Verkís styður mikilvægt starf björgunarsveita landsins með kaupum á Stóra Neyðarkallinum 2026. Með kaupunum leggur fyrirtækið sitt af mörkum til öflugs björgunarstarfs og styður við sjálfboðaliða sem eru ávallt tilbúnir að bregðast við þegar á þarf að halda.

Við hjá Verkís erum stolt af því að hafa innan okkar raða starfsfólk sem tekur virkan þátt í starfi björgunarsveita og leggur tíma sinn og krafta í þágu samfélagsins. Það er mikilvægt að styðja við þetta óeigingjarna starf og þau verðmæti sem það skapar fyrir samfélagið.

Neyðarkallssalan er ein stærsta árlega fjáröflun Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Ágóði sölunnar rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda um land allt og nýtist meðal annars til kaupa og endurnýjunar á búnaði, þjálfunar og eflingar starfsins.

Verkís er ánægt með að geta lagt málefninu lið og þakkar björgunarsveitarfólki fyrir mikilvægt framlag sitt til öryggis og velferðar samfélagsins.

🔗 Nánar um Neyðarkallinn og starf Landsbjargar.

Heimsmarkmið

Stóri Neyðarkallinn 2026 kominn í hús hjá Verkís.

Deila þessari færslu