Skip to content

Verkefni

Ölfusárbrú

Verkís sér um hönnun vega og stíga, tveggja undirganga, mislægra gatnamóta, lagna og lýsingar ásamt BIM-stjórnun við nýja brú yfir Ölfusá. 

Ný Ölfusárbrú er hluti af verkefninu Hringvegur (1) um Ölfusá, sem felur í sér að færa Hringveginn út fyrir þéttbýlið á Selfossi. Markmiðið er að bæta umferðaröryggi, greiða fyrir umferð og skapa betra nærumhverfi fyrir íbúa.



Yfirlit verkefnis

Nýja brúin yfir Ölfusá verður um 330 metra löng stagbrú með brúarturni á Efri-Laugardælaeyju. Hún er hluti af umfangsmiklu samgönguverkefni sem nær einnig til gerðar nýs 3,7 km kafla Hringvegar og um eins kílómetra af öðrum vegum. Auk þess verða byggð mislæg gatnamót og undirgöng fyrir gangandi, hjólandi og hestamenn.

Verkís sér um hönnun vega og stíga, tveggja undirganga, mislægra gatnamóta, lagna og lýsingar ásamt BIM-stjórnun. Ramboll annast hönnun sjálfrar stagbrúarinnar.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Vegagerðina, Sveitarfélagið Árborg, Flóahrepp og helstu veitufyrirtæki á svæðinu. ÞG Verktakar sjá um framkvæmdir.

330m

Lengd nýrrar brúar



3,7km

Nýr Hringvegur



60m

Hæð brúarturns

Áskorunin

Aukin umferð um Selfoss hefur skapað þörf fyrir nýja samgöngutengingu yfir Ölfusá. Núverandi brú hefur þjónað vegfarendum í nærri 80 ár og með nýju brúnni verður þung umferð færð frá miðbæ Selfoss og Hringvegurinn lagður utan þéttbýlisins. Verkefnið felur í sér fjölbreytta hönnunarþætti og innviði sem þurfa að falla saman í eina heild. Samræma þarf útfærslu vega, stíga, undirganga, gatnamóta, lagna og lýsingar við hönnun brúarinnar og aðstæður á framkvæmdasvæðinu.

Lausnin okkar

Verkís kemur að verkefninu með fjölbreytta verkfræðihönnun og BIM-stjórnun. Hönnun vega og stíga, mislægra gatnamóta og undirganga tekur mið af þörfum ólíkra vegfarenda og tengingu nýs vegakerfis við nærliggjandi svæði. Jafnframt sér Verkís um hönnun lagna og lýsingar og samræmingu hönnunargagna með BIM-stjórnun. Þannig er unnið að því að tryggja heildstæða útfærslu ólíkra innviða og mannvirkja innan verkefnisins.

Niðurstaðan

Ný Ölfusárbrú mun bæta samgöngur á Suðurlandi, auka umferðaröryggi og draga úr umferð um miðbæ Selfoss. Nýja brúin mun taka við þungri umferð en núverandi brú verður áfram nýtt fyrir léttari umferð. Með færslu Hringvegarins út fyrir þéttbýlið skapast jafnframt betri aðstæður fyrir íbúa og aðra vegfarendur á Selfossi.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Árborg


Stærð:


330 M


Verktími:


2025 – 2028


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið