Skip to content
29/10/2026

Atuarfik Inussuk tilnefndur til Skólabyggingar ársins 2026

Skóli í Nuuk
Skóli í Nuuk

Atuarfik Inussuk, stærsta skólabygging Grænlands, hefur verið tilnefndur til Skólabyggingar ársins 2026 af Nohrcon, dönsku fræðslu- og ráðgjafarfyrirtæki sem stendur að viðurkenningum fyrir vandaðar skólabyggingar. Tilnefningin beinir sjónum að metnaðarfullri hönnun skólans, þar sem skólastarf, samfélag og náttúra fléttast saman.

Verkís annaðist verkfræðihönnun verkefnisins fyrir Ístak, sem var alverktaki við byggingu skólans. Verkefnið var umfangsmikið alþjóðlegt samstarf sem gerði miklar kröfur til hönnunar og tæknilegrar útfærslu við krefjandi aðstæður á Grænlandi.

Skóli og samkomustaður í hjarta Nuuk

Atuarfik Inussuk er um 18.000 fermetrar að stærð og rúmar allt að 1.200 börn. Við skólann er einnig sérstök leikskólabygging fyrir um 120 börn. Byggingin samanstendur af sjö samtengdum húsum og er ætlað að skapa góða umgjörð um skólastarf en jafnframt vera samkomustaður fyrir íbúa Nuuk, þar sem aðstaðan nýtist einnig til fjölbreyttrar starfsemi utan skólatíma.

Skólinn stendur miðsvæðis í Nuuk, í nálægð við helstu stofnanir og verslunarmiðstöð borgarinnar. Hönnunin sækir innblástur í stórbrotið og hrjúft landslag Grænlands og leitast við að skapa öruggt og fjölbreytt umhverfi fyrir börn.

Samstarf í umfangsmiklu verkefni

Framkvæmdir hófust árið 2019 og Verkís annaðist verkfræðihönnunina fyrir Ístak í nánu samstarfi við verktakann og aðra samstarfsaðila. Tilnefning Atuarfik Inussuk til Skólabyggingar ársins 2026 er ánægjuleg viðurkenning á verkefninu, þar sem vönduð hönnun og tengsl byggingarinnar við umhverfi sitt eru í forgrunni.

Sjá nánar um verkefnið.

Heimsmarkmið

Skóli í Nuuk
Skóli í Nuuk

Deila þessari færslu