Steindór Guðmundsson útnefndur heiðursfélagi ÍSHLJÓÐS
Steindór Guðmundsson hljóðverkfræðingur, sem hefur starfað um áratugaskeið hjá Verkís, hefur verið útnefndur heiðursfélagi Íslenska hljóðvistarfélagsins, ÍSHLJÓÐ, fyrir framlag sitt til hljóðvistar á Íslandi og störf í þágu félagsins, sem fagnar 20 ára afmæli sínu á þessu ári.
Steindór var meðal stofnenda ÍSHLJÓÐS árið 2006 og fyrsti formaður félagsins frá 2006 til 2013. Á löngum starfsferli hefur hann komið að hönnun og eftirliti með hljóðvist í mörgum þekktum menningarhúsum landsins, þar á meðal Borgarleikhúsinu, Salnum í Kópavogi, Hofi á Akureyri og Hörpu.
Hann hefur einnig átt stóran þátt í að efla þekkingu á hljóðvist á Íslandi og móta þróun hennar í gegnum árin.
Verkís óskar Steindóri innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu.
**Lesa má nánar um feril Steindórs og framlag hans til hljóðvistar í frétt á vefsíðu Verkfræðingafélags Íslands (VFÍ).
