Skip to content
22/10/2026

Verkís hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Jafnvægisvogin 2026

Verkís er meðal 163 fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2026 fyrir kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum.

Viðurkenningin er veitt þeim sem hafa náð því viðmiði að hlutfall hvors kyns í framkvæmdastjórn sé að minnsta kosti 40%. Alls fjölgaði viðurkenningarhöfum um 27,3% frá fyrra ári, sem endurspeglar framfarir í átt að auknu kynjajafnvægi í íslensku atvinnulífi.

Yfirskrift Jafnvægisvogarinnar í ár er „Losum um hnútinn“ og er ætlað að hvetja fyrirtæki, stjórnir og stjórnendur til að taka virka afstöðu með jafnrétti og fylgja henni eftir í ákvörðunum sínum.

Verkís leggur áherslu á að skapa starfsumhverfi þar sem fjölbreytt þekking, reynsla og sjónarmið fá að njóta sín. Viðurkenning Jafnvægisvogarinnar er mikilvægt tilefni til að fagna árangri og halda áfram að vinna að jafnrétti og fjölbreytileika í íslensku atvinnulífi.

Heimsmarkmið

Jafnvægisvogin 2026

Deila þessari færslu