Skip to content

Verkefni

Orkuver í El Salvador

Jarðhitafyrirtækið LaGeo S.A. í El Salvador samdi við Enex árið 2005 um verkfræði, innkaup, byggingu og verkefnastjórnun vegna 9,3 MW stækkunar á Berlín-jarðvarmavirkjuninni, sem þá var 96 MW.

Með stækkuninni jókst uppsett afl jarðhitasvæðisins í Berlín í 105,3 MW.



Yfirlit verkefnis

Viðbygging virkjunarinnar nýtir lífræna Rankine-hringrás (ORC) í tvíþættu kerfi sem nýtir varma frá jarðhitavökva eftir gufuskilju. Jarðhitavökvinn kemur frá tveimur skiljustöðvum.

Þjónusta Verkís fólst í fullnaðarhönnun, gerð útboðsgagna, aðstoð við innkaup og gangsetningu vélbúnaðar, rafbúnaðar, stjórnkerfa og varnarbúnaðar.

Virkjunin nýtir 300 kg/s af 180°C heitum jarðhitavökva til raforkuframleiðslu. Vökvinn kemur úr fjórum borholum sem eru 2.000–2.500 metra djúpar og er leiddur í gegnum tvær gufuskiljur. Vökvinn frá skiljustöðvunum tveimur er ekki blandaður saman.

Jarðhitavökvinn er leiddur í gegnum varmaskipta sem samanstanda af tveimur forhiturum og einum suðukeri. Þar flyst varmi úr jarðhitavökvanum yfir í vinnuvökva virkjunarinnar. Ísópentan er notað sem vinnuvökvi í lífrænu Rankine-hringrásinni. Vinnuvökvinn fer í lokaðri hringrás í gegnum geislastreymishverfil sem knýr raforkuframleiðsluna. Að því loknu er vökvinn kældur og þéttur í eimsvala þar sem kælivatn streymir um kæliturn með mótstreymi.

Rafallinn er 13,8 kV, lofthældur hverfilsrafall með loft-vatnsvarmaskiptum. Örvunarkerfið er burstalaust. Rafallinn er tengdur við 13,8 kV rofabúnað sem er málmklæddur, hólfaskiptur og útdraganlegur. Rofabúnaðurinn er tengdur við aflspenni og er aukavaf hans tengt 115 kV háspennulínu um rofaskiljara við núverandi tengivirki virkjunarinnar.

480 V dreifirofabúnaðurinn samanstendur af hólfaskiptum, útdraganlegum útgangseiningum. 120 V jafnstraumskerfið er tvöfalt til að tryggja rekstraröryggi.

Stjórnkerfið byggist á einum forritanlegum stýri (PLC) með tveimur örgjörvaeiningum þar sem önnur tekur við sjálfvirkt ef hin bilar (hot standby). Stjórnkerfin tengjast tveimur miðlurum, öðrum í tvíþættu virkjuninni og hinum í annarri núverandi virkjun. Einnig er tenging við stjórnstöð raforkukerfisins.

Varnarkerfið byggist á tvöföldu stafrænu varnarliðakerfi með gagnasamskiptatengingum.

180°C

Hitastig jarðhitavökvans



300kg/s

Rennsli jarðhitavökva til raforkuframleiðslu



4

Vinnsluborholur

Áskorunin

LaGeo vildi auka raforkuframleiðslu Berlín-jarðvarmavirkjunarinnar og nýta núverandi jarðhitaauðlind sem best. Verkefnið kallaði á samþættingu háþróaðrar tækni sem nýtir tvíþætta hringrás til að umbreyta varma úr jarðhitavökva í viðbótarraforku með mikilli nýtni og áreiðanleika.

Lausnin okkar

Verkís veitti þverfaglega verkfræðiráðgjöf vegna 9,3 MW stækkunarinnar. Verkefnið fól meðal annars í sér fullnaðarhönnun, aðstoð við innkaup, gerð útboðsgagna og gangsetningu vélbúnaðar, rafbúnaðar, stjórnkerfa og varnarbúnaðar.

Stækkunin byggðist á lífrænni Rankine-hringrás (ORC), þar sem jarðhitavökvi úr núverandi jarðhitasvæði var nýttur til að framleiða viðbótarraforku. Lausnin var samþætt núverandi mannvirkjum og búnaði virkjunarinnar.

Niðurstaðan

Stækkun Berlín-virkjunar jók uppsett afl jarðhitasvæðisins í 105,3 MW og bætti nýtingu jarðhitaauðlindarinnar án þess að auka þyrfti gufuframleiðslu. Með vandaðri verkfræðihönnun og árangursríkri gangsetningu stuðlaði Verkís að áreiðanlegri lausn í endurnýjanlegri orkuframleiðslu sem styrkti jarðvarmanýtingu í El Salvador og sýndi fram á möguleika tvíþættrar hringrásar til að bæta nýtingu jarðhitaauðlinda.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


El Salvador


Stærð:


105,3 MW


Verktími:


2005 – 2006


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið