Nemendur í rafmagns- og tölvuverkfræði heimsóttu Verkís
Verkís tók á móti tæplega 70 nemendum í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands. Heimsóknin var hluti af námskeiðinu Nám og störf í rafmagns- og tölvuverkfræði, sem ætlað er nýnemum í greininni.
Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum starfsvettvang rafmagns- og tölvuverkfræðinga og þau fjölbreyttu tækifæri sem bjóðast hjá íslenskum fyrirtækjum.
Í heimsókninni var starfsemi Verkís kynnt og þrír starfsmenn sögðu frá menntun sinni, reynslu og verkefnum hjá fyrirtækinu. Það voru Árni Teitur Lindal Þrastarson, rafmagnsverkfræðingur á orkusviði, Geir Ragnarsson, hátækniverkfræðingur á iðnaðarsviði, og Viktor Ólason, rafmagnstæknifræðingur á orkusviði.
Að kynningum loknum sköpuðust líflegar umræður og nemendur fengu tækifæri til að spyrja spurninga og fræðast nánar um námið og störf á sviði rafmagns- og tölvuverkfræði.
Heimsóknir sem þessar eru mikilvægt tækifæri til að kynna nemendum fjölbreytt verkefni og starfsaðstæður í verkfræðigeiranum og gefa þeim innsýn inn í mögulegan framtíðarstarfsvettvang.
