Skip to content
26/10/2026

Verkís kom að Svansvottuðum endurbótum á húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur

© www.svanurinn.is
www.svanurinn.is

Orkuveita Reykjavíkur hefur hlotið Svansleyfi fyrir umfangsmiklar endurbætur á skrifstofuhúsnæði sínu að Bæjarhálsi 1 í Reykjavík. Verkefnið nær yfir tæplega 5.000 fermetra og er stærsta endurbótaverkefni sem hefur hlotið Svansvottun á Íslandi í einu lagi. Verkís annaðist hönnun verkefnisins og veitti ráðgjöf vegna Svansvottunarinnar.

Umfangsmiklar endurbætur með áherslu á sjálfbærni

Endurbæturnar miða að því að bæta nýtingu húsnæðisins, auka orkunýtni og skapa nútímalegt og heilsusamlegt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur.

Framkvæmdirnar ná meðal annars til Vesturhúss byggingarinnar, sem hefur að mestu staðið ónotað undanfarin ár, auk umfangsmikilla breytinga á hvolfrými hússins. Þar var hringstigi fjarlægður og nýir millipallar útbúnir til að bæta tengingar milli byggingarhluta og auka samnýtingu rýma.

Sérstök áhersla var lögð á bætta innivist og orkunýtni. Meðal annars var skipt um gler í útveggjum og þaki hvolfrýmisins og settir upp sólarskermar til að draga úr ofhitnun og bæta vinnuumhverfið. Þá gegna gróður og plöntur mikilvægu hlutverki í hönnun húsnæðisins.

Verkís annaðist hönnun og ráðgjöf vegna Svansvottunar

Verkís gegndi mikilvægu hlutverki í verkefninu, bæði við hönnun endurbótanna og í tengslum við Svansvottun þeirra.

Eiríkur K. Þorbjörnsson, rafmagnstæknifræðingur á Byggingarsviði Verkís, var verkefnastjóri hönnunar, sem unnin var innan fyrirtækisins. Þórey Edda Elísdóttir, umhverfisverkfræðingur á Byggingarsviði, annaðist ráðgjöf vegna Svansvottunarinnar.

Svansvottun bygginga felur í sér strangar kröfur um meðal annars efnisval, rakavarnir, loftgæði og aðra þætti sem stuðla að heilnæmu innanhússumhverfi og minni umhverfisáhrifum.

Verkefnið sýnir hvernig hægt er að nýta og endurbæta eldra húsnæði í samræmi við kröfur um sjálfbærni og umhverfisgæði, í stað þess að byggja nýtt.

Heimsmarkmið

© www.svanurinn.is

Deila þessari færslu