Skip to content
19/10/2026

Verkís hannar nýja lýsingu á gámasvæði Grundartangahafnar

© Faxaflóahafnir
Faxaflóahafnir

Verkís annaðist lýsingar- og raflagnahönnun vegna endurnýjunar lýsingar á gámasvæði Faxaflóahafna á Grundartanga. Með nýrri LED-lýsingu hafa birtuskilyrði og öryggi á svæðinu verið bætt, um leið og dregið hefur verið úr ljósmengun og glýju.

Framkvæmdum við nýtt gámasvæði á baksvæði Tangabakka á Grundartanga er lokið. Verkefnið er liður í áframhaldandi uppbyggingu Grundartangahafnar og felur meðal annars í sér bætta vinnuaðstöðu til meðhöndlunar og geymslu gáma ásamt endurnýjun lýsingar á svæðinu.

Lýsing endurhönnuð með áherslu á öryggi og umhverfi

Verkís sá um lýsingarhönnun og raflagnahönnun vegna framkvæmdarinnar. Í upphafi verkefnisins var gerð úttekt á fyrirliggjandi lýsingu og birtustig mælt á öllu svæðinu. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að lýsingin var langt undir þeim kröfum sem gerðar eru til gámasvæða. Jafnframt ollu eldri ljósabúnaður og ómarkviss ljósdreifing töluverðri ljósmengun og glýju.

Í kjölfarið var lýsing svæðisins endurhönnuð og öllum eldri lömpum skipt út fyrir nýja LED-lampa. Við hönnunina var lögð sérstök áhersla á að tryggja nægilega góða og jafna lýsingu fyrir starfsemi hafnarinnar, án þess að óþarfa ljós bærist út fyrir svæðið eða ylli glýju.

Við hönnun lýsingarinnar var notast við lýsingarhönnunarforritið DIALux til að reikna út og sannreyna birtuskilyrði á svæðinu. Með þeim hætti var tryggt að fyrirhuguð lýsing uppfyllti viðeigandi kröfur og staðla um lýsingu hafnarsvæða.

Mynd úr úr reikniforritinu Dialux
Mynd úr úr reikniforritinu Dialux

Jákvæð áhrif á nærumhverfið

Endurnýjun lýsingarinnar hefur skilað bættum birtuskilyrðum og auknu öryggi fyrir starfsfólk og aðra sem fara um svæðið. Um leið hefur dregið úr óþarfa ljósdreifingu til nærliggjandi svæða.

Samkvæmt Faxaflóahöfnum hafa breytingarnar fengið jákvæð viðbrögð frá starfsfólki fyrirtækja á Grundartanga, meðal annars Norðuráls, Elkem og Klafa, auk íbúa í nágrenninu.

Verkefnið er gott dæmi um hvernig markviss lýsingarhönnun getur stuðlað að öruggara vinnuumhverfi og um leið dregið úr neikvæðum áhrifum lýsingar á nærumhverfið.

Heimsmarkmið

© Faxaflóahafnir

Deila þessari færslu