Verkís á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2026
Verkís tók þátt í Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2026 sem haldin var dagana 8.–9. október í Vör, farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Viðeyjarsund. Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir fulltrúa sveitarfélaga, stjórnsýslu og atvinnulífs til að ræða fjármál, rekstur og framtíðaruppbyggingu sveitarfélaga.
Verkís var með kynningarbás á ráðstefnunni þar sem fjórir útibússtjórar fyrirtækisins tóku á móti gestum. Það voru Ragnar Bjarnason, útibússtjóri á Akureyri, Guðrún Jóna Jónsdóttir, útibússtjóri í Reykjanesbæ, Steingrímur Jónsson, útibússtjóri á Egilsstöðum, og Ari Guðmundsson, útibússtjóri á Selfossi.
Í básnum var fjölbreytt þjónusta Verkís kynnt og gafst gestum tækifæri til að ræða við útibússtjórana um verkefni, samstarf og þær áskoranir sem sveitarfélög standa frammi fyrir. Fjölmargir lögðu leið sína í básinn og sköpuðust góðar umræður og samtöl við bæði núverandi og mögulega samstarfsaðila.
Gestum var boðið upp á kaffimál, brjóstsykur og sérstaka Verkís-spilastokka sem vöktu mikla lukku.
Á dagskrá ráðstefnunnar voru meðal annars umræður um fjármál sveitarfélaga, innviðauppbyggingu, sjálfbæra þróun og fjármögnun framkvæmda. Þessi málefni tengjast náið starfsemi Verkís og þeirri fjölbreyttu verkfræði- og ráðgjafarþjónustu sem fyrirtækið veitir sveitarfélögum um allt land.
Þátttakan var gott tækifæri til að styrkja tengsl við sveitarfélögin, kynna starfsemi Verkís og eiga samtal um framtíðarverkefni og uppbyggingu innviða.
