Skip to content
06/10/2026

Ný göngu- og hjólabrú formlega opnuð í Elliðaárdal

© Vísir/Sigurjón
Brúin yfir Dimmu leysir af eldri brú sem rifin var fyrr á árinu.
Vísir/Sigurjón

Ný göngu- og hjólabrú var formlega opnuð í Elliðaárdal 28. september. Brúin kemur í stað veitustokks sem var nýttur sem göngubrú. Brúin er yfir Elliðaárnar (Dimmu) í Elliðaárdal en opnað var fyrir umferð þar fyrr í sumar. Brúin er hönnuð hjá Verkís sem hluti af hönnun Arnarnesveg á Vatnsendahæð. Arkitektar eru Úti og Inni ásamt norsku arkitektastofunni L2.

Vegna mikilvægi og stöðu Elliðaánna í Reykjavík var lagt vægi á að brúin væri opin, aðlaðandi og falleg. Aðgengi undir brúnna er tryggt fyrir veiðimenn og aðra. Notkun á tré í brúnna hefur kosti í loftslag- og umhverfissamhengi þar sem hún bindur CO2 og er einnig létt brú. Að auki þótti áhugavert fyrir límtrésframleiðslu á Íslandi að fá faglegan og fjárhagslegan hvata til að þróa þennan valkost.

Brúin er um 6,0 m breið með 3,0 m fyrir gangandi vegfarendur og 3,0 m fyrir hjólandi. Brúin er fær þjónustubifreiðum í tengslum við viðhald og snjóruðning. Brúargólfið samanstendur af þverspenntri límtrésplötu, 315 mm þykkri. Brúarplatan spannar ca. 46,2 m milli landstöpla og er studd á legum í landstöplum og þverbitum á ca. 8 m millibili. Ystu þverbitar eru studdir á súlum, og aðrir þverbitar eru studdir af límtrésbogum.. Límtrésbogarnir eru 4 talsins og eru 810 mm háir. Ofan á brúargólfið er bræddur dúkur og síðan er malbikað yfir dúkinn. Límtrésbogarnir og súlurnar samnýta undirstöðu sitt hvoru megin árinnar.  Burðarbitar og brúargólf brúarinnar er klætt af með klæðningarkerfi til að verja þá sól, veðri og vindum. Handrið á brúnni er ryðfrítt stál 1,4 m hátt með lóðréttum rimlum. Innfelld lýsing er í handlista handriðs.

Brúin er hönnuð fyrir 100 ára líftíma með hæfilegu viðhald. Íhlutir og útbúnaður sem verða fyrir skaða eða skemmdum innan hönnunarlíftíma eru aðgengilegir vegna viðhalds eða endurnýjunar.

Heimsmarkmið

Brúin yfir Dimmu leysir af eldri brú sem rifin var fyrr á árinu.
© Vísir/Sigurjón

Deila þessari færslu