Heildstætt áhættumat fyrir Grindavík – ný nálgun við áhættumat og ákvarðanatöku
Nýjar áhættumatsaðferðir eru í þróun fyrir stöðuna í Grindavík vegna þeirrar viðvarandi ógnar af völdum náttúrvár sem þar hefur ríkt síðastliðin hart nær þrjú ár. Með aðferðinn sem byggir á þátttöku fjölmargra hagaðila, eru vísindaleg gögn, reynsla og gildismat Grindvíkinga sem og sérfræðiþekking, samnýtt við ákvörðun þolmarka áhættu, vali á nauðsynlegum áhættuminnkandi aðgerðum og mati á áhrifum þeirra.Dóra Hjálmarsdóttir, verkfræðingur hjá Verkís og sérfræðingur í öryggis-, áhættu- og neyðarstjórnun, stýrir verkefninu sem ráðgjafi stjórnvalda/yfirvalda.
Verkefnið hefur verið í úrvinnslu frá því í maí með aðkomu fjölmargra aðila, bæði Grindvíkinga, fulltrúa stjórnvalda, óháðra sérfræðinga og annarra hagaðila. Í september voru kynntar fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík. Vinnan beindist, í þessum áfanga, að öryggi fólks við daglega dvöl í bænum og við mögulega rýmingu, skólahaldi og öryggi húsnæðis. Forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi eru taldar ásættanlegar að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir séu virkar.
Áhættumat sem byggir á fleiri sjónarhornum
Jarðhræringarnar á Reykjanesskaga hafa skapað viðvarandi og óvenjulegar áskoranir fyrir Grindavík. Í nýju nálguninni er áhættan því ekki aðeins metin út frá náttúruvá og vísindalegum gögnum heldur einnig út frá samfélagslegum þáttum, áhættuþoli og þeim aðgerðum sem hægt er að grípa til til að draga úr áhættu.
Aðferðafræðin byggir á þátttökunálgun þar sem vísindaleg gögn og sérfræðiþekking eru nýtt samhliða þekkingu, reynslu og staðkunnáttu Grindvíkinga. Í grunnvinnunni voru skilgreindir 23 áhættuvísar og 150 mótvægisaðgerðir sem tengjast öryggi, húsnæði og skólahaldi.
Lifandi áhættumat
Ein af áherslum verkefnisins er að áhættumatið sé lifandi gagn sem taki breytingum eftir því sem aðstæður breytast. Einnig verði það þróað áfram samhliða aukinni þekkingu og reyslu. Lokamarkmiðið er opinbert áhættumat þar sem gagnsæi og rekjanleiki eru í fyrirrúmi og hægt er að sjá á hvaða gögnum og forsendum ákvarðanir byggjast.
Dóra Hjálmarsdóttir hefur starfað við neyðarstjórnun í yfir 30 ár og hefur í verkefninu lagt áherslu á mikilvægi þess að horfa á áhættu frá ólíkum sjónarhornum og nýta fjölbreytta sérþekkingu.
„Við erum öll að fóta okkur í þessu verkefni af því að við höfum ekki áður tekist á við hamfaraatburð sem tekur ekki skjótan enda. Þess vegna þarf að nálgast verkefnið með öðrum hætti og horfa á áhættuna út frá fleiri sjónarhornum.“
Niðurstöður fyrsta hluta endurskoðaðs áhættumats eru uppfærsla á fyrra áhættumati og verða þær nýttar sem grundvöllur áframhaldandi vinnu við gerð heildstæðs áhættumats fyrir Grindavík sem tekur nú við af þessari vinnu.
Verkís hefur mikla reynslu af áhættugreiningu, neyðarstjórnun og ráðgjöf vegna náttúruvár og kemur að verkefninu með þverfaglega þekkingu á verkfræði, áhættustjórnun og samfélagslegum þáttum.
Frétt af visir.is : Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík



