Verkís opnar nýja skrifstofu í Kaupmannahöfn
Þann 17. september sl. opnaði Verkís Rådgivende Ingeniører formlega nýja skrifstofu að Strandvejen 60 í Hellerup í Kaupmannahöfn. Verkís Rådgivende Ingeniører er dótturfélag Verkís og markar opnun skrifstofunnar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu starfsemi félagsins í Danmörku og styrkingu tengsla við danskan markað.
Í tilefni opnunarinnar var helstu samstarfsaðilum, viðskiptavinum og öðrum velunnurum boðið að skoða nýju skrifstofuna og þiggja veitingar. Gestir fengu jafnframt kynningu á starfsemi Verkís og framtíðarsýn félagsins í Danmörku.
Náin tengsl við starfsemina á Íslandi
Skrifstofan verður starfsaðstaða fyrir starfsfólk Verkís sem býr og starfar í Danmörku. Starfsfólkið verður áfram hluti af faglegum hópum Verkís og vinnur náið með samstarfsfólki á Íslandi. Fyrst um sinn verður megináhersla starfseminnar á íslensk og grænlensk verkefni Verkís, en með aukinni viðveru í Danmörku skapast jafnframt tækifæri til að styrkja tengsl við danskan markað, byggja upp ný viðskiptatengsl og auka samstarf við fyrirtæki og fagaðila þar í landi.
Með skrifstofunni skapast aukinn sveigjanleiki fyrir starfsfólk sem vill búa og starfa í Danmörku en um leið halda áfram að taka þátt í verkefnum Verkís og vera hluti af faglegu umhverfi fyrirtækisins. Þannig er hægt að viðhalda þekkingu, samstarfi og samfellu í verkefnum óháð búsetu.
Tækifæri fyrir íslenskt námsfólk í Danmörku
Viðvera Verkís í Kaupmannahöfn skapar einnig tækifæri til að styrkja tengsl við íslenskt námsfólk í verkfræði og öðrum tæknigreinum í Danmörku og kynna því starfsemi og verkefni Verkís.
Að námi loknu getur námsfólk þannig átt möguleika á að hefja starfsferil hjá Verkís frá Kaupmannahöfn, taka þátt í verkefnum fyrirtækisins og verða hluti af faglegum hópum þess. Flytji það síðar aftur til Íslands getur starfsferillinn haldið áfram innan sama fyrirtækis.
Með þessu vill Verkís bjóða upp á sveigjanlega og samfellda starfsleið milli Íslands og Danmerkur þar sem starfsþróun og þátttaka í fjölbreyttum verkefnum þarf ekki að ráðast af búsetu.
Nýja skrifstofan er staðsett í Regus Business Center við Strandvejen 60 í Hellerup. Með henni styrkir Verkís bæði tengsl sín við starfsfólk, námsfólk í Danmörku, danskt atvinnulíf og faglegt tengslanet.
Við óskum samstarfsfólki okkar í Danmörku innilega til hamingju með nýju skrifstofuna og hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar og samstarfs milli Íslands og Danmerkur.

