Garðabær

Garðabær óskar eftir tilboðum í framkvæmdaverkið ÁLFTANES, MIÐSVÆÐI, Svæði 1 – Breiðamýri, Stígar – yfirborðsfrágangur.

Verkið felst í að ljúka yfirborðsfrágangi í miðsvæði hverfisins Breiðumýrar á Álftanesi. Um er að ræða malbikun á aðalstíg í gegnum svæðið, gröft, fyllingu og burðarlag á þrjár stígtengingar frá Lambamýri og Grásteinsmýri inn á aðalstíginn ásamt lagningu á rafstrengjum og uppsetningu á ljósastaurum fyrir stíglýsingu. Auk þess er innifalinn frágangur yfirborðs, áningarstaða og leiksvæðis.

Helstu stærðir og magntölur eru eftirfarandi:

Gröftur fyrir stígum og raflögnu 315 m3
Styrktarlag 680 m3
Burðarlag 2.800 m2
Malbikun 2.000 m2
Rafstrengir 1.890 m
Uppsetning ljósastólpa og polla 41 stk.
Úthagatorf 1.000 m2
Uppsetning bekkja 12 stk.

Verklok eru 20. desember 2026.

Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg á útboðssíðu Verkís. Útboðsgögn eru aðgengileg frá og með 22. september 2026.

Tilboð skulu hafa borist fyrir 6. október 2026 kl. 14:00. Tilboð verða opnuð rafrænt þriðjudaginn 6. október 2026 kl. 15:00.