Ný kalkþörungaverksmiðja rís í Súðavík
Framkvæmdir við nýja kalkþörungaverksmiðju Íslenska kalkþörungafélagsins á Langeyri í Súðavík ganga vel og var nýverið efnt til reisugildis í tilefni þess að sperrur hafa verið reistar á verksmiðjuhúsinu.
Verkís komið að verkefninu frá fyrstu stigum
Verkís hefur komið að verkefninu frá fyrstu stigum og sá um forhönnun verksmiðjunnar. Í framhaldinu hefur Verkís annast yfirferð allrar hönnunar og uppáskrift teikninga vegna framkvæmdarinnar. Verkís sá líka um skipulagsbreytingar vegna verkefnisins (aðaskipulagsvinnu og deiliskipulagsvinnu)
Verksmiðjuhúsið er umfangsmikið, um 100 metra langt og 40 metra breitt, auk viðbyggingar sem liggur eftir húsinu endilöngu. Ungverska verktakafyrirtækið Lakogep annast byggingarframkvæmdir og Tígur ehf. jarðvegsframkvæmdir.

Stefnt að prófunum um mitt ár 2027
Framkvæmdir hafa gengið samkvæmt áætlun og gert er ráð fyrir að byggingu hússins ljúki um næstu áramót. Að því loknu hefst vinna við uppsetningu verksmiðjunnar sjálfrar og er stefnt að því að prófanir hefjist um mitt ár 2027.
Áætlaður framkvæmdakostnaður er um 5,5–6,5 milljarðar króna. Að auki er ráðgert að um einn milljarður króna fari í lagningu nýs jarðstrengs Orkubús Vestfjarða frá Ísafirði til Súðavíkur, sem Íslenska kalkþörungafélagið ábyrgist.
Reisugildið markar stóran áfanga í framkvæmdunum á Langeyri og verður spennandi að fylgjast með verksmiðjunni taka á sig endanlega mynd á næstu mánuðum.
