01/09/2026
Tilboð óskast : Torfunef – lagnir, lagnaleiðir og brunnar í þekju
Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tilboðum í verkið:
Torfunef
Lagnir, lagnaleiðir og brunnar í þekju
Verkið felst í greftri skurða, lagnavinnu, lögn ídráttarröra, söndun, frágangi og steypu hnalla utan um afhendingarbrunna fyrir þjónustu skipa á rafmagni og heitu og köldu vatni á Torfunefsbryggju.
Tæknileg útfærsla á afhendingarstað og frágangur á vatnskerfum í þjónustuhúsi er einnig innifalinnn í verkinu.
Tæknilegur frágangur rafmagns í þjónustuhúsi sem og steypuvinna þekju er ekki hluti þessa útboðs.
Gögn verða afhent í tölvupósti en ósk um gögn skal send á netfangið rab@verkis.is þar sem fram skal koma nafn verktaka og forsvarsmaður hans.
