Skip to content

Verkefni

Nýtt úthverfi á Grænlandi

Til að mæta auknum fólksfjölda ætla yfirvöld í Nuuk að reisa nýtt úthverfi á Siorarsiorfik sem er ósnortið svæði suðaustur af núverandi byggð.



Yfirlit verkefnis

Hverfið mun samanstanda af 800 íbúðum ásamt þeim innviðum og þjónustu sem slíkt úthverfi kalla á.

Sérfræðingar Verkís veittu jarðfræðilega ráðgjöf við grunnrannsóknir vegna áætlaðrar jarðgangagerðar fyrir veg- og jarðgöng til uppbyggingar á nýju íbúahverfi við Nuuk. Verkefnið er unnið fyrir Nuuk City Development A/S.

Verkís sá einnig um hönnun ganga sem munu tengja nýja hverfið við höfuðborgina Nuuk. Vegtengingin verður um 1,5 km en þar af eru eins kílómeters löng göng. Göngin verða tvíbreið og hvor akrein 3,5 m á breidd. Þá verður einnig sameiginlegur stígur fyrir gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk. Stígurinn verður vel aðskilinn frá veginum. Vonast er til þess að göngin verði komin í notkun eftir þrjú ár.

800

Íbúðir í nýju hverfi



1km

Lengd fyrirhugaðra jarðganga



1500m

Lengd nýrrar vegtengingar

Áskorunin

Aukinn fólksfjöldi í Nuuk kallar á ný íbúðahverfi og uppbyggingu nauðsynlegra innviða á áður óbyggðu svæði. Krefjandi landslag og aðstæður gerðu kröfur um vandaðar grunnrannsóknir og lausnir fyrir nýja vegtengingu og jarðgöng.

Lausnin okkar

Verkís veitti jarðfræðilega ráðgjöf við grunnrannsóknir vegna fyrirhugaðra veg- og jarðganga og annaðist hönnun jarðganga sem tengja nýja hverfið við Nuuk. Vegtengingin verður um 1,5 km löng, þar af um 1 km í tvíbreiðum göngum. Einnig er gert ráð fyrir sameiginlegum stíg fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, aðskildum frá akbrautinni.

Niðurstaðan

Ný vegtenging og jarðgöng munu skapa örugga og greiða tengingu milli nýja íbúahverfisins og Nuuk. Verkefnið styður við uppbyggingu 800 íbúða hverfis og framtíðarvöxt höfuðborgarsvæðisins.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Siorarsiofik, Nuuk


Stærð:


1,5 km


Verktími:


2019 –


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið