Skip to content

Verkefni

Canakkale

Orkuverið er staðsett nærri tyrknesku borginni Canakkale og var gangsett í lok árs 2015.

Verkís veitti ýmsa ráðgjöf vegna jarðvarmaorkuversins.



Yfirlit verkefnis

Atlas Copco Gas and Process hefur reist og afhent orkuver, sem unnt er að starfrækja á sjálfstæðan máta.  Þessi eiginleiki gerir eigandanum kleift að fæða orku inná smærri flutningskerfi og tryggir stöðugan rekstur orkuversins með því að halda henni  áfram í rekstri, þó bilun verði í megin flutningskerfi orkunnar.
 
Jarðsjávarsöfnunin í þessu verki er fyrsta sinnar tegundar, og er hönnuð fyrir óvenju háan hönnunarþrýsting, til að vinna gegn vandamálum, sem stafa af háu gasinnihaldi jarðsjávarins.  Jarðhitasérfræðingar Verkís lögðu sitt af mörkum við hönnun söfnunarkerfis fyrir jarðsjóinn með því að skilgreina hugmyndafræðina, framkvæma varma- og burðarstreitugreiningu á ORC pípum, og framkvæma deilihönnun á lagnakerfinu í samvinnu við Atlas Copco Energas.
 
Verkís hannaði einnig hluta af raf- og stýrikerfum og annaðist hönnunarrýni á teikningum undirverktaka, sem og eftirlit með FAT prófunum á framkvæmdastað.  Prófanir og gangsetning er afgerandi þáttur í þróun og uppbyggingu jarðvarmavirkjana sem síðasta skrefið fyrir rekstrarhæft ástand. Þverfaglegt teymi Verkís hefur víðtæka reynslu á þessu sviði.  Sérfræðingar Verkís tóku þátt í gangsetningu raf-, stjórn- og varnarbúnaðar Çanakkale jarðvarmavirkjunarinnar, sem og tengingu við aðliggjandi orkuflutningskerfi.
7mw

Uppsett afl





Áskorunin

Orkuverið þurfti að geta starfað sjálfstætt og haldið áfram framleiðslu þrátt fyrir bilun í meginflutningskerfi raforku. Sérstök áskorun var einnig fólgin í söfnun jarðsjávar, þar sem hátt gasinnihald kallaði á óvenju háan hönnunarþrýsting og sérhæfðar lausnir í lagnakerfinu.

Lausnin okkar

Jarðhitasérfræðingar Verkís tóku þátt í hönnun söfnunarkerfis fyrir jarðsjó og skilgreindu hönnunarhugmyndina. Verkís framkvæmdi jafnframt varma- og burðarstreitugreiningar á ORC-lögnum og deilihannaði lagnakerfið í samstarfi við Atlas Copco Energas. Þá hannaði Verkís hluta raf- og stýrikerfa og annaðist hönnunarrýni, eftirlit með FAT-prófunum og þátttöku í prófunum og gangsetningu.

Niðurstaðan

Canakkale jarðvarmaorkuverið var gangsett í lok árs 2015 og er hannað til að tryggja stöðugan rekstur og afhendingu raforku, einnig við truflanir í meginflutningskerfinu. Sérhæfð hönnun og prófun raf-, stjórn- og varnarkerfa studdi örugga gangsetningu og tengingu orkuversins við flutningskerfið.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Tyrkland 


Stærð:


7 MW


Verktími:


2013 – 2015


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið