Skip to content
26/08/2026

Sjóprófanir hafnar í WHISPER-verkefninu

mariatopic_oceanwigns_solbian_whisper

Evrópska orkuskipta- og nýsköpunarverkefnið WHISPER, sem Verkís leiðir, hefur náð mikilvægum áfanga þar sem fullar sjóprófanir eru nú hafnar um borð í Ultramax-magnflutningaskipinu Maria Topic.

Skipið, sem er í flota Ant. TOPIC, hefur verið útbúið stífum vængseglum frá OceanWings og sólarsellum frá Solbian. Vængseglin nýta vindorku til að aðstoða við knúning skipsins og draga þannig úr aflþörf aðalvélarinnar, en sólarsellurnar framleiða endurnýjanlega raforku til notkunar um borð.

Í sjóprófununum verður tæknin metin við raunverulegar rekstraraðstæður, meðal annars með tilliti til orkuframleiðslu, mögulegs eldsneytissparnaðar, áreiðanleika og samþættingar við daglegan rekstur skipsins.

„Eftir mikinn undirbúning og þróunarvinnu er afar spennandi að hefja loks sjóprófanirnar. Að sjá vængseglin og sólarsellurnar um borð í Maria Topic sýnir okkur að raunhæfar grænar lausnir eru ekki fjarlæg framtíðarsýn heldur raunverulegur valkostur í dag. Fram undan eru einnig sjóprófanir á tæknilausnum SideWind og Solbian og við hlökkum til að segja nánar frá þeim innan skamms,“ segir Carine Chatenay, byggingarverkfræðingur hjá Verkís og verkefnisstjóri WHISPER.

WHISPER sameinar 13 samstarfsaðila víðs vegar um Evrópu og miðar að því að þróa einingaskiptar tæknilausnir sem geta dregið úr eldsneytisnotkun og losun gróðurhúsalofttegunda frá kaupskipaflotanum.

Verkefnið er styrkt af rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins, Horizon Europe, og stendur til ársloka 2026.

Lesa fréttatilkynningu WHISPER:

WHISPER moves to full-scale sea trials with wind propulsion and solar power retrofit aboard bulk carrier

Heimsmarkmið

mariatopic_oceanwigns_solbian_whisper