Skip to content

Verkefni

Viðey RE

Viðey er systurskip Engeyjar og Akureyjar og voru kerfi Engeyjar afrituð með talsverðum lagfæringum yfir í Viðey.



Yfirlit verkefnis

Viðey RE er ísfisktogari sem smíðaður var í Celiktrans-skipasmíðastöðin í Istanbúl í Tyrklandi. Viðey RE kom til heimahafnar sinnar í Reykjavík á vetrarsólstöðum, hinn 21. desember árið 2017. Móttökuathöfn var haldin daginn eftir í Örfirisey og við það tækifæri var skipinu formlega gefið nafn. Togarinn er tæplega 55 metrar að lengd og 13,5 metrar að breidd.

Verkís kom að eftirfarandi verkþáttum; hönnun, teikningar, forritun og prófanir á stýrikerfi fyrir lestarkerfi, fiskflokkun og kælikerfi, hönnun, forritun, uppsetning og prófanir á skjákerfum og rekstrareftirlit lestar- og skjákerfum.

55m

Lengd skips



13,5m

Breidd skips



Áskorunin

Að yfirfæra og þróa kerfi úr systurskipinu Engey yfir í Viðey RE, með nauðsynlegum lagfæringum og aðlögun að nýju skipi. Jafnframt þurfti að tryggja að stýri-, kæli-, flokkunar- og skjákerfi ynnu saman á áreiðanlegan og skilvirkan hátt.

Lausnin okkar

Verkís sá um hönnun, teikningar, forritun og prófanir á stýrikerfum fyrir lestarkerfi, fiskflokkun og kælikerfi. Auk þess hannaði og forritaði Verkís skjákerfi skipsins, sá um uppsetningu og prófanir þeirra og hafði rekstrareftirlit með lestar- og skjákerfum.

Niðurstaðan

Viðey RE kom til heimahafnar í Reykjavík árið 2017 sem tæknilega vel útbúinn ísfisktogari. Með samþættum stýri- og skjákerfum Verkís varð til áreiðanlegt og skilvirkt kerfi fyrir eftirlit og stjórnun mikilvægra starfskerfa skipsins, sem styður við öruggan og hagkvæman rekstur.


Verkefnið í hnotskurn


Stærð:


55 m


Verktími:


2018


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið