Yfirlit verkefnis
Á hugmyndastigi verkefnisins fól Faxaflóahafnir Verkís að vinna þarfagreiningu fyrir nýja farþegamiðstöð. Þar sem margir ólíkir hagsmunaaðilar koma að verkefni af þessu tagi var lögð áhersla á að kalla saman sjónarmið þeirra og greina þarfir og væntingar til mannvirkisins.
Verkís stýrði vinnu með hagsmunaaðilum og vann skýrslu sem innihélt hagsmunaaðilagreiningu, drög að húsrýmisáætlun og tæknilega forsögn, auk kostnaðaráætlunar, lífsferilskostnaðar (LCC) og tímaáætlunar fyrir næstu skref verkefnisins.
Í framhaldinu kom Verkís að undirbúningi útboðs og gerð útboðsgagna á grundvelli þarfagreiningarinnar og stýrði jafnframt vinnu dómnefndar. Útboðið var unnið sem samstarfssamkeppni, þar sem arkitektar, verkfræðingar og verktaki mynduðu teymi og lögðu sameiginlega fram tillögu að hönnun og framkvæmd verkefnisins.
Þrjú teymi tóku þátt í samkeppninni. Tillögurnar voru metnar af tveimur óháðum dómnefndum, þar sem annars vegar var horft til gæða hönnunar, innra skipulags og kostnaðarmarkmiða og hins vegar til hæfni teymanna til samstarfs við Faxaflóahafnir um fullnaðarhönnun og byggingu mannvirkisins.
Skóflustunga að nýju farþegamiðstöðinni var tekin við Skarfabakka og markar það upphaf framkvæmda við verkefnið.
5700m²
Stærð nýrrar farþegamiðstöðvar
4000
Farþegar sem miðstöðin getur sinnt á dag
Áskorunin
Að móta skýran grunn fyrir fjölnota farþegamiðstöð þar sem ólíkir hagsmunir, þarfir og væntingar fjölmargra aðila færu saman. Jafnframt þurfti að tryggja að verkefnið hefði skýra tæknilega, fjárhagslega og rekstrarlega umgjörð áður en ráðist væri í hönnun og framkvæmdir.
Lausnin okkar
Verkís stýrði þarfagreiningu verkefnisins, greindi sjónarmið hagsmunaaðila og mótaði húsrýmisáætlun, tæknilega forsögn, kostnaðaráætlun, LCC-greiningu og tímaáætlun.
Í framhaldinu sá Verkís um gerð útboðsgagna og stýrði vinnu dómnefndar í samstarfssamkeppni þar sem þverfagleg teymi lögðu fram tillögur að hönnun, framkvæmd og samstarfi.
Niðurstaðan
Verkefnið hefur farið frá hugmynd og þarfagreiningu yfir í hönnun og framkvæmd nýrrar fjölnota farþegamiðstöðvar við Skarfabakka.
Með markvissum undirbúningi, víðtæku samráði og vel skilgreindu útboðsferli lagði Verkís grunn að verkefni þar sem gæði hönnunar, kostnaður og framkvæmdahæfni fara saman. Nýja farþegamiðstöðin verður mikilvæg viðbót við innviði Faxaflóahafna og uppbyggingu Sundahafnar.