Skip to content

Verkefni

Krummakot leikskóli, Eyjafjarðarsveit

Verkís kom að hönnun nýs húsnæðis fyrir leikskólann Krummakot í Eyjafjarðarsveit, sem veitir börnum og starfsfólki nútímalegt og vel útfært náms- og starfsumhverfi.

Verkís sá um fjölbreytta verkfræðiþjónustu við verkefnið, þar á meðal hönnun burðarvirkja, lagna, raflagna og loftræsingar, auk brunahönnunar og hljóðvistar.



Yfirlit verkefnis

Leikskólinn Krummakot er hluti af Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit. Flutningurinn í nýtt húsnæði markar mikilvæg tímamót fyrir leikskólann og skapar betri aðstöðu fyrir bæði börn og starfsfólk.

Nýja húsnæðið býður upp á betra flæði og aukna nálægð milli deilda, sem styður við samstarf innan leikskólans. Nýr búnaður og bætt aðstaða skapa jafnframt tækifæri til að efla þjónustu við börn og foreldra.

Húsnæðið tengist einnig grunnskólanum, sem eykur möguleika á samstarfi milli skólastiga og styður við samfellu í skólastarfi.

Verkefnið er mikilvægur þáttur í uppbyggingu Hrafnagilshverfis, sem hefur farið ört stækkandi, og stuðlar að bættu aðgengi íbúa að menntun og þjónustu í nærumhverfinu.

900

Stærð viðbyggingar





Áskorunin

Að skapa nútímalegt og hagkvæmt húsnæði sem uppfyllir þarfir leikskólastarfs og veitir börnum öruggt, heilnæmt og aðlaðandi umhverfi. Jafnframt þurfti að tryggja góða tengingu milli deilda og skólastiga.

Lausnin okkar

Verkís kom að hönnun helstu tæknikerfa byggingarinnar, þar á meðal burðarvirkja, lagna, raflagna, loftræsingar, brunavarna og hljóðvistar. Hönnunin styður við sveigjanlegt og vel skipulagt umhverfi þar sem áhersla er á öryggi, góða innivist og skilvirka starfsemi.

Niðurstaðan

Nýtt húsnæði Krummakots hefur skapað betri aðstöðu fyrir börn og starfsfólk og styrkt um leið innviði Hrafnagilshverfis. Nýja húsnæðið eykur möguleika á samstarfi innan leikskólans og milli leik- og grunnskóla og styður þannig við öflugt skólasamfélag í Eyjafjarðarsveit.


Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:


Eyjafjarðarsveit, Norðurlandi


Stærð:


900 M²


Verktími:


2024 – 2025


Þjónusta Verkís





Heimsmarkmið