Skip to content
02/07/2026

Opið hús um Sæbrautarstokk þar sem Verkís kemur að hönnun verkefnisins

Grétar Páll Jónsson, byggingarverkfræðingur hjá Verkís, ræðir hér við gesti

Undirbúningur Sæbrautarstokks heldur áfram og í vikunni gafst almenningi tækifæri til að kynna sér verkefnið á opnu húsi í Vogaskóla. Þar tóku fulltrúar Verkís þátt ásamt öðrum aðilum verkefnisins og svöruðu spurningum gesta um hönnun, skipulag og framkvæmd.

Verkís er hluti af ráðgjafateymi verkefnisins og hefur komið að forhönnun Sæbrautarstokksins ásamt því að vinna mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna.

Á opna húsinu var farið yfir helstu markmið framkvæmdarinnar, hvernig hönnunin fellur að borgarumhverfinu og hvaða áhrif verkefnið hefur á samgöngur, nærumhverfi og þróun svæðisins. Gestir gátu skoðað gögn verkefnisins, rætt við sérfræðinga og komið á framfæri spurningum og ábendingum.

Gestir gátu kynnt sér verkefnið

Annað opið hús verður haldið í Vogaskóla í dag, fimmtudaginn 2. júlí, þar sem áfram verður hægt að kynna sér verkefnið og ræða við fulltrúa ráðgjafateymisins og verkkaupa.

Sæbrautarstokkur er eitt stærsta samgönguverkefni sem nú er í undirbúningi á höfuðborgarsvæðinu. Með verkefninu er stefnt að því að bæta samgöngur, draga úr umferðarhávaða og skapa ný tækifæri til uppbyggingar og betri tenginga milli hverfa.

Nánari upplýsingar um verkefnið og skipulagstillögurnar má finna í Skipulagsgátt.

Heimsmarkmið

Grétar Páll Jónsson, byggingarverkfræðingur hjá Verkís, ræðir hér við gesti

Deila þessari færslu