Sjálfbærni- og árangursskýrsla Verkís 2025 er komin út
Yfirlit yfir starfsemi, áherslur og árangur ársins
Sjálfbærni- og árangursskýrsla Verkís fyrir árið 2025 er komin út. Í skýrslunni er farið yfir starfsemi fyrirtækisins, helstu áherslur í sjálfbærnimálum og lykilþætti sem tengjast umhverfi, samfélagi og stjórnarháttum.
Skýrslan veitir jafnframt innsýn í hvernig Verkís vinnur að því að samþætta sjálfbærni í eigin rekstur og þjónustu, auk þess sem fjallað er um verkefni þar sem sjálfbærni skiptir meginmáli.
Byggt á mikilvægisgreiningu
Umfjöllunarefni skýrslunnar byggja á niðurstöðum mikilvægisgreiningar Verkís og endurspegla þá sjálfbærniþætti sem fyrirtækið telur mikilvægustu fyrir starfsemi sína og hagaðila.
Tölulegar upplýsingar eru að mestu leyti framsettar með hliðsjón af GRI-stöðlum og við útreikninga á kolefnisspori er fylgt viðmiðum Greenhouse Gas Protocol.
Fjallað um starfsemi, þjónustu og loftslagsmál
Í skýrslunni er meðal annars fjallað um:
- Starfsemi Verkís
- Stefnu og þjónustu fyrirtækisins
- Kolefnisspor Verkís og aðgerðir í loftslagsmálum
- Áherslu á starfsfólk, heilbrigt vinnuumhverfi og jafnrétti
- Verkefni þar sem sjálfbærni skiptir meginmáli
Skýrslan dregur þannig saman helstu upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins á árinu og varpar ljósi á þau viðfangsefni sem tengjast sjálfbærni og ábyrgum rekstri.
Skoðaðu skýrsluna
Sjálfbærni- og árangursskýrsla Verkís 2025 er aðgengileg hér á vefnum.
