Sjálfbærnivika Verkís gekk vel
Dagana 26.–29. maí hélt Verkís sjálfbærniviku með fjölbreyttri dagskrá sem ætlað var að efla þekkingu og vitund starfsfólks um umhverfismál og sjálfbærni.
Markmið vikunnar var að skapa vettvang fyrir fræðslu og umræðu um sjálfbærni og fá innsýn í hvernig fyrirtæki og stofnanir takast á við áskoranir og tækifæri á þessu sviði. Til Verkís komu gestafyrirlesarar úr atvinnulífinu sem deildu reynslu sinni af innleiðingu sjálfbærni í starfsemi, stefnumótun og verkefnum.
Meðal fyrirlesara var Ívar Kristinn Jasonarson, sérfræðingur á deild loftslags og sjálfbærni hjá Landsvirkjun, sem fjallaði um vegferð fyrirtækisins í loftslags- og umhverfismálum, aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og mikilvægi samstarfs allra aðila sem koma að framkvæmdum.
Í lok vikunnar fluttu Kamma Thordarson, verkefnastjóri atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg, og Arnhildur Pálmadóttir arkitekt erindi um sjálfbæra borgarþróun, loftslagsmarkmið og hvernig markmið um minnkað kolefnisspor bygginga birtast í raunverulegum verkefnum.
Sem hluti af dagskránni var jafnframt haldinn Dagur vistvænna ferðamáta þar sem starfsfólk var hvatt til að prófa umhverfisvænni samgöngur til og frá vinnu. Einnig kynnti starfsfólk Svansins umhverfismerkið Svaninn og mikilvægi áreiðanlegra umhverfismerkinga fyrir neytendur og fyrirtæki.

Alla vikuna stóð starfsfólki til boða að skila gömlum raftækjum til endurvinnslu í sérstaka raftækjatunnu og þannig stuðla að aukinni endurnýtingu verðmætra efna og málma.
Sjálfbærnivikan er liður í þeirri áherslu Verkís að efla þekkingu á sjálfbærni og stuðla að upplýstri umræðu um þau málefni sem móta framtíð samfélags, atvinnulífs og mannvirkjagerðar.
