Verkís á WGC 2026
Verkís er stolt af því að vera hluti af íslensku sendinefndinni á alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunni World Geothermal Congress 2026 í Calgary dagana 8.–11. júní.
Sendinefndin er skipulögð af Green by Iceland og sameinar yfir 100 sérfræðinga á sviði jarðhita úr allri virðiskeðjunni.
Kynntu þér íslensku sendinefndina nánar hér.
Fjórir þátttakendur frá Verkís taka þátt í ár: Bjarni Steinar Gunnarsson, Eyþór Sigurðsson, Sæmundur Jónsson og Þorleikur Jóhannesson. Allir eru þeir vélaverkfræðingar og tilheyra vélbúnaðarhóp á Orkusviði hjá Verkís.

Hjá Verkís byggjum við á áratuga reynslu af samþættingu jarðhitalausna inn í íslenska orkuinnviði — allt frá frumhönnun og verkfræðiráðgjöf til langtímareksturs og sjálfbærrar auðlindastýringar.
Þróun jarðhita snýst ekki eingöngu um auðlindina sjálfa heldur einnig um hvernig kerfin eru hönnuð, tengd og rekin sem hluti af áreiðanlegu orkukerfi. Reynslan á Íslandi veitir dýrmæta innsýn fyrir markaði sem vinna að því að byggja upp jarðhita sem langtímalausn í orkumálum.
