Skip to content
18/05/2026

Verkís er Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2026, þriðja árið í röð

Tekið á móti viðurkenningunni í Hörpu sl. miðvikudag

Besti árangur Verkís hingað til í könnuninni Fyrirtæki ársins

Verkís hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2026 þegar niðurstöður könnunarinnar Fyrirtæki ársins voru kynntar í Hörpu, miðvikudaginn 13.maí. Þetta er þriðja árið í röð sem Verkís fær þessa viðurkenningu og jafnframt besti árangur fyrirtækisins hingað til í könnuninni.

Í ár lenti Verkís í 11. sæti í flokki stórra fyrirtækja, þar sem starfa 70 eða fleiri starfsmenn, með heildareinkunnina 4,41 af 5 mögulegum. Verkís var eina verkfræðistofan sem fékk viðurkenningu í þessum flokki.

Viðurkenningin byggir alfarið á mati starfsfólks og endurspeglar upplifun þess af meðal annars starfsanda, stjórnun, jafnrétti, vinnuaðstöðu, vellíðan og liðsheild á vinnustaðnum.

Sterk liðsheild og gott starfsumhverfi

Könnunin Fyrirtæki ársins er árleg könnun á vegum VR og Gallup og er ein umfangsmesta vinnustaðakönnun landsins. Aðeins þau fyrirtæki sem uppfylla skilyrði um þátttöku og svarhlutfall koma til greina sem Fyrirmyndarfyrirtæki VR.

Við hjá Verkís erum afar stolt af þessum árangri og þakklát starfsfólkinu okkar fyrir að leggja sitt af mörkum til að skapa jákvætt, metnaðarfullt og öflugt starfsumhverfi. Viðurkenningin er skýr staðfesting á þeirri sterku liðsheild sem einkennir fyrirtækið og hvetur okkur áfram til að halda áfram að þróa vinnustaðinn enn frekar.

Það er sameiginlegt verkefni allra hjá Verkís að byggja upp góðan vinnustað og þessi árangur sýnir hvað næst þegar fólk vinnur saman af heilindum, metnaði og frumkvæði.

Heimsmarkmið

Tekið á móti viðurkenningunni í Hörpu sl. miðvikudag

Deila þessari færslu