Þorleifur Þorbjörnsson ráðinn útibússtjóri Verkís á Vesturlandi
Þorleifur Þorbjörnsson, vél- og orkutæknifræðingur, hefur verið ráðinn útibússtjóri Verkís á Vesturlandi og tók við stöðunni 8. apríl síðastliðinn. Hann er búsettur á Akranesi og mun starfa bæði frá starfsstöðvum Verkís á Akranesi og í Borgarnesi.
Þorleifur hefur víðtæka reynslu af rekstri og verkefnastjórnun og hefur gegnt fjölbreyttum stjórnunar- og sérfræðistörfum hjá Sorpu bs. og Metan ehf., dótturfélagi Sorpu. Þar hefur hann komið að umfangsmiklum þróunar- og umbótaverkefnum.
Síðustu ár hefur Þorleifur meðal annars starfað sem rekstrarstjóri Metan ehf., verkefnastjóri tækni og þróunar hjá Sorpu bs. og sviðsstjóri hjá GAJA gas- og jarðgerðarstöð. Þar leiddi hann greiningu og umbætur á rekstri, vann að aukinni nýtingu lífgass og tók þátt í stefnumótun og þróun verkefna á sviði umhverfis- og orkulausna.
Þá hefur hann einnig gegnt ábyrgðarstöðum við rekstur urðunarstaðarins í Álfsnesi og komið að stórum tæknilegum verkefnum og endurskipulagningu starfsemi.
Þorleifur er með BSc-gráðu í vél- og orkutæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig lokið námi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands.
Við bjóðum Þorleif hjartanlega velkominn til starfa.
