Vorfundur SATS fór fram á Ísafirði dagana 6. og 7. maí þar sem fjölbreytt málefni tengd skipulagi, innviðum og sjálfbærum lausnum sveitarfélaga voru til umræðu. Starfsfólk Verkís flutti þrjú erindi á fagþinginu.
Gott skipulag: Áskoranir og uppskriftir
Gunnar Páll Eydal, umhverfis- og auðlindafræðingur og skipulagsfræðingur hjá Verkís, flutti erindið Gott skipulag: Áskoranir og uppskriftir. Þar fjallaði hann um reynslu og dæmi frá Ísafirði, en Verkís hefur unnið að fjölmörgum skipulagsverkefnum á svæðinu á undanförnum árum.
Í erindinu var meðal annars farið yfir áskoranir og tækifæri í skipulagsmálum sveitarfélaga og hvernig markviss nálgun getur stutt við sjálfbæra þróun og góð samfélög.
Gunnar Páll flytur hér erindi sitt
Fráveita sveitarfélaga – frá stöðugreiningu til fjármögnunar og framkvæmda
Jóhann Birkir Helgason, Útibússtjóri / byggingartæknifræðingur, flutti tvö erindi á þinginu. Í fyrra erindinu fjallaði hann um úttekt á fráveitukerfi Ísafjarðarbæjar sem Verkís vann árið 2017 og hvernig sú vinna hefur nýst sem grunnur að markvissri uppbyggingu fráveitukerfis sveitarfélagsins síðan þá.
Kynnt var hvernig stöðugreining kerfisins var framkvæmd, hvernig forgangsröðun framkvæmda var mótuð og hvernig niðurstöðurnar nýttust við undirbúning fjármögnunar verkefna. Verkefnið leiddi meðal annars til þess að á síðasta ári fékkst evrópustyrkur að upphæð um 350 milljónir króna til framkvæmda sem byggja á þessari vinnu.
Grænir knattspyrnuvellir – nýting varmadæla til upphitunar valla
Í seinna erindi Jóhanns var kynnt lausn þar sem varmadælur eru nýttar til upphitunar knattspyrnuvalla. Þar var farið yfir tæknilega uppsetningu, rekstrarkostnað og þann ávinning sem sveitarfélög geta haft af því að draga úr orkukostnaði og kolefnisspori með slíkum lausnum.
Erindin endurspegla fjölbreytta þekkingu starfsfólks Verkís á sviði skipulags, innviða og sjálfbærra lausna fyrir sveitarfélög um allt land.