Dagur stafrænnar mannvirkjagerðar fer fram í Hörpu
Í dag, 8. maí, stendur BIM Ísland fyrir ráðstefnunni Dagur stafrænnar mannvirkjagerðar í Silfurbergi í Hörpu. Þar koma saman sérfræðingar úr mannvirkjageiranum til að fjalla um stafræna umbreytingu, notkun gervigreindar og hvernig aukin samnýting gagna getur stuðlað að meiri virðissköpun og hagræðingu í hönnun, framkvæmdum og rekstri mannvirkja.
Ráðstefnan hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn helsti samráðsvettvangur fagfólks í stafrænni mannvirkjagerð hér á landi og hafa um 250–300 manns sótt viðburðinn árlega. Dagskráin í ár spannar fjölbreytt efni, meðal annars stafræna verkefnastjórnun, upplýsingastýringu, generative design, stafræna tvíbura og notkun gervigreindar í hönnun, útboðsgerð og skipulagsmálum.
Meðal fyrirlesara eru bæði innlendir og erlendir sérfræðingar sem flytja erindi um þróun og nýsköpun í mannvirkjageiranum. Þá verða einnig pallborðsumræður um stafræna umbreytingu í geiranum og sérstakar örkynningar á sýningarbásum ráðstefnunnar.
Verkís tekur þátt í ráðstefnunni með bás og fulltrúum á staðnum þar sem gestum gefst kostur á að kynna sér hvernig fyrirtækið vinnur með stafrænar lausnir, BIM og nýsköpun í mannvirkjagerð.
BIM Ísland eru félagasamtök aðila sem koma að hönnun, framkvæmd, rekstri og eignaumsýslu mannvirkja. Markmið félagsins er að vera leiðandi vettvangur í þróun, innleiðingu og stöðlun BIM og stafrænnar tækni í mannvirkjagerð. Nýlega stofnaði BIM Ísland einnig buildingSMART Iceland einingu sem styrkir tengsl félagsins við buildingSMART International og eykur möguleika til samstarfs og þróunar á alþjóðlegum vettvangi.
Ráðstefnan er ætluð öllum sem starfa innan mannvirkjageirans, þar á meðal hönnuðum, verktökum, verkkaupum, rekstraraðilum og öðrum sérfræðingum sem vilja fylgjast með nýjustu þróun í stafrænni mannvirkjagerð.
